top of page

Kristján sigrar 501 mót

  • 6 days ago
  • 1 min read

Skemmtilegt 501 pílumót var fimmtudaginn 9. apríl. Alls mættu 20 leikmenn, skipt var í fjóra riðla og svo var farið í útslátt.

Margir hörkuleikir fóru fram og leikmenn skemmtu sér vel.








Siggi, Kolli og Guðgeir spila vel og Guðjón H tekur fjórða sætið.


Jöfn keppni hér. Karl spilar best og vinnur Jóel og tekur fyrsta sætið. Tómas í þriðja og Bjarki í fjórða.


Agnes mætti í sitt fyrsta fimmtudagsmót og vann alla nema einn. Ísak sigrar á leggjamun, Agnes í öðru, Björn í þriðja og Hlynur í fjórða.


Kristján vinnur alla en Ási gaf honum leik. Fannar tekur þriðja sætið og Bragi það fjórða.



 

Hörkuleikir í útslættinum. Bjarki spilar vel og tekur Ása út og á hörkuleik við Kolla en tapar 2-3. Kolbeinn fer í úrslitaleik og er klaufi að vinna ekki Kristján í úrslitaleiknum. Kolli var kominn í 2-1 en náði ekki að taka út í næstu tveimum leggjum og Kristján stendur uppi sem sigurvegari.


Við óskum Kristjáni til hamingju með sigurinn og þökkum öllum keppendum fyrir þátttökuna – næsta mót er rétt handan við hornið!

Bara smella á Viðburðir PFK til að sjá næstu mót,

 
 
 

Comments


AUGLÝSING

bottom of page