top of page

Kristján sigraði í spennandi 501 móti PFK

Aug 21
2 min read

Fimmtudaginn 13. ágúst var haldið 501 mót hjá Pílufélagi Kópavogs. Keppt var í tveimur riðlum og síðan var haldið áfram í útsláttarkeppni. Alls tóku 9 keppendur þátt og var frábær stemning í salnum.


Kristinn sterkastur í A-riðli


Í A-riðli var keppt um efsta sætið milli Kristins og Bjarka. Kristinn hafði betur og sigraði Bjarka 3–1 í hörkuleik sem var spennandi frá upphafi til enda.

Guðjón hafnaði í þriðja sæti, Agnes í því fjórða og Steinunn í því fimmta.


Hörkukeppni í B-riðli


Í B-riðli var mikil barátta um efsta sætið. Kristján og Ási áttust við í æsispennandi leik þar sem Kristján byrjaði af miklum krafti. Hann byrjaði á 16 pílum og svo tók hann 18 pílur. Ási svaraði með 22 pílum og jafnaði leikinn með 20 pílum. Allt var því jafnt þegar kom að oddaleiknum. Kristján hélt þó haus, kláraði leikinn á 23 pílum og tryggði sér 3–2 sigur.

Siggi hafnaði í þriðja sæti og Anna Björg í því fjórða.


Úrslit 8 manna útsláttarkeppni


Kristinn – Anna Björg 3–0

Guðjón – Ási 0–3

Kristján – Agnesi 3–0

Siggi – Bjarki 3–2


Í síðasta leiknum mættu Siggi og Bjarki hvor öðrum í mjög jöfnum leik. Þeir tveir hafa bætt sig mikið og eru orðnir virkilega góðir keppendur. Siggi hafði þó betur að þessu sinni og tryggði sér sæti í undanúrslitum.


Undanúrslit


Kristinn – Ási 3–0


Kristinn átti mjög góðan leik og hafði yfirhöndina frá byrjun. Hann spilaði af öryggi og tryggði sér sæti í úrslitaleiknum.


Kristján – Siggi 3–1


Siggi byrjaði betur og komst í 1–0, en Kristján sýndi mikinn karakter og svaraði með þremur leikjum í röð. Hann sneri leiknum sér í hag og tryggði sér sæti í úrslitunum.


Kristján meistari kvöldsins


Í úrslitaleiknum mættust því Kristján og Kristinn. Kristján tók strax stjórn á leiknum og spilaði mjög vel. Hann nýtti færin sín vel og kláraði leikinn 3–0.


Kristján stendur því uppi sem sigurvegari 501 móts Pílufélags Kópavogs! 🏆🎯


Til hamingju, Kristján, með frábæran sigur og sömuleiðis öllum keppendum með góða keppni og skemmtilegt kvöld.


Næsta mót má sjá á heimasíðu Pílufélags Kópavogs: www.pfk.is/vidburdir


Allir velkomnir í Digranes!


Áfram PFK!🎯❤️

 
 
 

Comments


AUGLÝSING

bottom of page