Kári og Elín Íslandsmeistarar

Íslandsmót ungmenna fór fram laugardaginn 25. apríl 2026.
Margir keppendur PFK kepptu á mótinu og Kári Vagn sigraði alla sína andstæðinga og varð Íslandsmeistari U18.
Elín Dögg sigraði alla sína andstæðinga í sínum flokki og varð Íslandsmeistari U13.
Þetta er fyrsti Íslandsmeistaratitill PFK í kvennaflokki.
Til hamingju Íslandsmeistarar Kári og Elín.

Ísak Máni lék um Íslandsmeistaratitillinn í U13 en tapaði 4-3 í hörkuleik. Til hamingju með 2. sætið Ísak Máni.

Jökull Þór varð í 3.-4. sæti, en hann tapaði í undanúrslitum fyrir Ísaki. Til hamingju Jökull Þór með 3.-4. sætið.
Hægt er að skoða úrslitin með að smella á dartconnect
Einnig er hægt að horfa á leikina með að fara inn á livedartsiceland á Youtube.
Frábær árangur hjá okkar krökkum. Við viljum minna á að við munum æfa pílu í allt sumar og byrjar Pingpong.is mótaröðin í maí.
Ási, Kristján og Sævar munu halda áfram að þjálfa krakkana.



Comments