Kári stingur af í Bulls deildinni.
- 2 days ago
- 1 min read

Sjöunda umferð af 11, var spiluð fimmtudaginn 26. febrúar. Átján leikmenn mættu til leiks og var skipt niður í þrjár deildir. Spilað var 501 best af 5 alla leið. Í öllum deildum voru svo spiluð undanúrslit og úrslitaleikur.
Frábærir leikir og allir skemmu sér vel í Digranesinu þetta kvöldið.
Kári spilar frábærlega og er með flesta leikina yfir 70 avg en tók tvo yfir 80 avg. Annann 86 avg.

Þeir Alex, Ási og Kári voru jafnir á stigum og þurfti leggjahlutfall til að ákveða hver var í efsta sæti eftir riðilinn. Flottir leikmenn sem eru að spila vel. Kári er með tök á Ása, og fór svo létt með Alex með 83 avg leik í úrslitum.
Til hamingju Kári Vagn með sigurinn.

Ingi Rafn Róbertsson spilar vel og vinnur 2. deildina eftir hörkuleik við Kristinn um fyrsta sætið.
Til hamingju Ingi

Hinn 15 ára Tómas rétt komst upp úr riðlinum en vann svo Sæla í undanúrslitum og Jóel í úrslitaleik í jöfnum leik. Til hamingju Tómas
Hér er stigataflan bara smella á hana til að skoða hana.
Við þökkum öllum sem mættu og Pingpong.is fyrir að styrkja mótið.
Næsta umferð fer fram fimmtudaginn 5. mars.
Húsið opnar kl: 19:00 og mótið byrjar kl:19:30.



Comments