Kári Vagn tapar varla móti og tekur 6. umferð í Bull's deildinni
- 11 hours ago
- 1 min read

Sjötta umferð af átta var spiluð fimmtudaginn 19. janúar. Sautján leikmenn mættu til leiks og var skipt niður í þrjár deildir. Spilað var 501 best af 5 alla leið. Í öllum deildum voru svo spiluð undanúrslit og úrslitaleikur.
Frábærir leikir og 180 tekið á annarri hverri mínútu í Digranesinu þetta kvöldið.
Kári er kominn með gott tak á Ása og vinnur hann alltaf í hörkuleik í odda.
Til hamingju Kári Vagn með sigurinn.



Hér er stigataflan bara smella á hana til að skoða hana.
Við þökkum öllum sem mættu og Pingpong.is fyrir að styrkja mótið.
Næsta umferð fer fram fimmtudaginn 26. febrúar.
Húsið opnar kl: 19:00 og mótið byrjar kl:19:30.



Comments