Kópavogsmeistarar í Grand Prix Tvímenningi
- Apr 23
- 2 min read
Updated: Apr 24

Kópavogsmótið í Grand Prix tvímenningi var haldið fimmtudagkvöldið 16. apríl. 24 einstaklingar mættu og voru tólf lið skipuð. Dregið var í tvo riðla og spilað var í riðlum og svo útslætti. Best af 5 alla leið og útsláttur eftir riðla frá 8 liða úrslitum. Gaman er að segja frá því að fjögur paranna voru feðgar en við mælum alveg með því að feðgar, bræður, frændur og frænkur komi og keppi í tvímenningi hjá okkur.
Flottir leggir og leikir voru spilaðir í Digranesi þetta kvöld og allir skemmtu sér vel.

í A riðli voru hörkuleikir og margir fóru í odda. Að lokum voru það feðgarnir Davíð og Viktor sem unnu riðilinn og Bjarki og Kristinn í öðru sæti. Í þriðja sæti voru Kóngarnir Siggi og Bjössi og svo tóku Ási og Guðjón fjórða sætið. Í fimmta og sjötta sæti voru feðga Tómas og Sölvi og Maggi og Kári í sinni fyrstu keppni saman.

Í B riðli spiluðu Jón Bjarmi og Daníel best og unnu riðilinn. Elvar og Sævar tóku annað sætið með flottri frammistöðu. Í þriðja sæti urðu Karl og Guðgeir sem spiluðu vel saman en Kolbeinn ákvað að taka ekki feðgaslaginn með Guðgeiri þetta kvöldið. Í fjórða sæti voru feðgarnir Björn og Tómas. Bragi og Snæland enduðu í fimmta sætinu en vonbrigði kvöldsins voru tveir af okkar efnilegustu leikmönnum, þeir Kári Vagn og Kolbeinn. Þeir félagar unnu ekki leik og áttu mikið inni, ekki þeirra kvöld.

Í átta liða útslættinum fóru þrír af fjórum leikum 3-0, bara einn leikur í smá spennu, þar unnu Kalli og Guðgeir þá Bjarka og Kristinn 3-1. Vel gert hjá þeim.
Í undanúrslitum unnum feðgarnir sína leiki og fóru í úrslit. Það var hörku úrslitaleikur og höfðu allir gaman af. En Jón Bjarmi og sonur hann Daníel unnu feðgana Davíð og Viktor 3-1.
Til hamingu Bjarmi og Daníel.
Við óskum Jóni Bjarma og Daníel til hamingju með sigurinn og þökkum öllum keppendum fyrir þátttökuna – næsta mót er rétt handan við hornið!
Bara smella á Viðburðir PFK til að sjá næstu mót.
Myndir af keppendum.















Comments