top of page

Kópavogsmót í 301 (SIDO) barna og unglinga

  • 3 days ago
  • 2 min read

Þann 13. apríl var var haldið Kópavogsmót 301 beint inn, tvöfaldur út. Keppt var í þremur flokkum; drengir 12 ára og yngri, stúlkur 12 ára og yngri og 18 ára og yngri drengir. 21 keppandi mætti til leiks og var mikið fjör og gaman.




Flokkur 12. ára og yngri drengja. Mikil keppni var í gangi og barátta um hvert sæti.

Leikmenn spiluðu vel og tóku flott útskot. Undanúrslitaleikir og úrslitaleikur voru hörku viðureignir.

í undanúrslitum spiluðu:

Alexander gegn Kristni 2-0 og

Eyþór gegn Þórarni 0-2.

Úrslitaleikur var þá :

Alexander gegn Þórarni 3-0.

Til hamingju Alexander.



Í stúlkna flokki voru fjórir keppendur. Mikil gleði var í gangi og keppisskapið mikið.

Mjög hörð keppni og gaman að sjá hvað stelpurnar spilluðu vel.

Undanúrslit: Elín gegn Eddu 2-0

Karítas gegn Lottu 2-0.

Úrslitaleikur Karítas geg Elínu 0-2.

Þar sem Elín kláraði báða leggina á flottum útköstum; 76 út og 24 út á fyrstu pílu.


Til hamingju Elín.




Í 18 ára og yngri flokknum voru spilaðir tveir riðlar og svo var farið í 8 manna útslátt.

Frábærir leikir og mikil gleði hjá leikmönnum.

Í A-riðli varð Kári Freyr í efsta sæti riðilsins með fjóra sigra í fimm leikjum. Í öðru sætinu var Sölvi og þriðja Jökull Þór, en allt var jafnt þar en Sölvi vann innbyrðis viðureignina. Jakob varð í fjórða á slakara leggjahlutfalli en Sölvi og Jökull Þór.



Í B-riðli var einnig mikil keppni. Ari tók fyrsta sætið með leggjahlutfallið gegn bróður sínum Tómasi. Ísak Máni varð í þriðja, en hann tapaði gegn Ara og Tómasi. Adrían tók fjórða með örlítið betra leggjahlutfall en Gabríel









Í 8 manna útslættinum tók alvaran við.

Hörkuleikir og allt undir.

Allir leikir mjög spennandi og lítið bar á milli manna.

Miklar framfarir hafa verið hjá öllum drengjunum og mátti sjá há útskot og frábæra leggi og leiki.

Að lokum var það Ísak Máni sem sigraði Jökul Þór 3-1 í úrslitum. Adrían og Ari í 3.-4. sætinu.


Til hamingju Ísak Máni.
















Hér eru nokkra myndir frá mótinu.












Við óskum öllum sigurvegurum til hamingju og þökkum öllum keppendum fyrir þátttökuna – næsta mót er rétt handan við hornið!

Bara smella á Viðburðir PFK til að sjá næstu mót, https://www.pfk.is/


 
 
 

Comments


AUGLÝSING

bottom of page