top of page

Vel heppnað styrktarmót fyrir Halla Birgis

  • May 6
  • 1 min read

Þriðjudaginn 5. maí hélt Pílufélag Kópavogs styrktarmót til stuðnings Halla Birgis, þar sem góð mæting og frábær stemning settu svip sinn á kvöldið.


Alls mættu 15 leikmenn til leiks og var þeim skipt í þrjá riðla. Að riðlakeppni lokinni var farið í 16 manna útsláttarkeppni þar sem spennan jókst jafnt og þétt.



Í úrslitaleiknum mættust þeir Kristján Sig og Sævar, þar sem Kristján hafði betur með öruggum 3–0 sigri. Kristján átti afar sterkt mót og tapaði einungis einum leik – gegn hinum ógnarsterka Ása Harðar sem hefur gott tak á Kristjáni.


Samhliða aðalmótinu fór fram skemmtilegur hliðarleikur þar sem þátttakendur gátu skorað á Halla í einum legg fyrir 1.000 krónur og komist í pott til að vinna píluspjald. Mikill áhugi var á leiknum, en aðeins þeir sem náðu að sigra Halla komust í pott um vinning. Þrír leikmenn unnu hann, og að lokum var það Tómas Björnsson sem var dreginn úr hattinum og hlaut að launum Shot Bandit píluspjald.


Stemningin var frábær allt kvöldið og greinilegt að þátttakendur nutu þess að leggja sitt af mörkum til stuðnings sínum manni.


Að lokum vill Pílufélag Kópavogs þakka pingpong.is kærlega fyrir stuðninginn við mótið.


Bara smella á Viðburðir PFK til að sjá næstu mót.



 
 
 

Comments


AUGLÝSING

bottom of page