Steinunn sigraði krikketmót kvenna
- May 6
- 1 min read

Kvenna Krikketmót Pílufélags Kópavogs var spilað mánudaginn 4. maí og fór fram við frábærar aðstæður og var þátttakan góð en alls mættu 17 keppendur til leiks.
Keppni hófst með riðlakeppni þar sem spilað var í fjórum riðlum. Þar var hart barist um sæti í útsláttarkeppni og fóru margar spennandi viðureignir fram. Að riðlakeppni lokinni tók við 16 manna útsláttur þar sem ekkert var gefið eftir.
Í útsláttarkeppninni sýndi Steinunn góða spilamennsku og stöðugleika. Hún vann sig örugglega í gegnum fyrstu umferðirnar þar sem hún lagði meðal annars Andreu Rut og síðan Aldísi á leið sinni í undanúrslit.
Í undanúrslitum mætti Steinunn Unni og tryggði sér sæti í úrslitaleiknum með góðum leik.
Úrslitaleikurinn var síðan á milli Steinunnar og Önnu Bjargar. Þar hélt Steinunn áfram góðu gengi sínu og sigraði sannfærandi 2–0 og tryggði sér þar með sigur á mótinu.
Mótið var í alla staði vel heppnað og ljóst að kvennastarf PFK er í mikilli sókn. Pílufélag Kópavogs óskar Steinunni innilega til hamingju með sigurinn og þakkar öllum þátttakendum fyrir frábæra keppni – næsta mót er rétt handan við hornið!
Bara smella á Viðburðir PFK til að sjá næstu mót.



Comments