top of page

Sævar sjóðandi og vinnur 3. umferð í Bull´s deildinni

  • pfk111
  • 5 days ago
  • 1 min read

Þriðja umferð af átta var spiluð fimmtudaginn 29. janúar. Sextán leikmenn mættu til leiks og var skipt niður í þrjár deildir. Spilað var 501 best af 5 alla leið. Í öllum deildum voru svo spiluð undanúrslit og úrslitaleikur.

Frábærir leikir og fullt af tonnum og tonnum 80. Sævar átti hæsta útskotið 130, tók 16 pílna legg, spilaði vel og sigraði þriðju umferð án þess að tapa leik. Besti leikurinn hans var 75,80 avg auk þess sem hann átti fleiri góða leiki yfir 70 avg.

Til hamingju Sævar Þór.





Það var mikil barátta í 2. deild. Bjarki lenti í fjórða sæti í riðlinu en mætti tvíefldur í útsláttinn og vann báða leikina sína og sigraði 2. deild.



Undanúrslit: Jóel 1 - 0 Elvar, Ingi 1 - 0 Benedikt Úrslit: Ingi 3 - 1 Jóel
Undanúrslit: Jóel 1 - 0 Elvar, Ingi 1 - 0 Benedikt Úrslit: Ingi 3 - 1 Jóel

Það var Ingi Rafn sem kom sá og sigraði 3. deildina. Jóel í öðru sæti eftir útslátt.






Við þökkum öllum sem mættu og Pingpong.is fyrir að styrkja mótið.

Næsta umferð fer fram fimmtudaginn 5. febrúar.

Húsið opnar kl: 19:00 og mótið byrjar kl:19:30.

 
 
 

Comments


AUGLÝSING

bottom of page