top of page

Ási sigraði 501 mót

  • 3 days ago
  • 1 min read

Pílufélag Kópavogs stóð fyrir 501 pílumóti þann 30. apríl þar sem 16 leikmenn tóku þátt. Keppt var í fjórum riðlum áður en haldið var í útsláttarkeppni þar sem allir 16 leikmenn tóku þátt.


Ási fór rólega af stað í riðlakeppninni en tryggði sér þó fyrsta sæti í riðlinum. Í útsláttarkeppninni fór hann hins vegar á flug og sýndi frábæra takta.




Á leið sinni í úrslitaleikinn lagði Ási meðal annars:

  • Agnesi í fyrstu umferð 3-1

  • Braga í 8 manna úrslitum 3-0

  • Guðgeir í undanúrslitum 3-0


Ási var öflugur í þessum leikjum, kláraði leggi á 16–18 pílum og náði upp 65–70 meðaltali í nokkrum viðureignum.


Í úrslitaleiknum mætti hann Sigurði Þorsteinssyni. Þar var Ási sterkari aðilinn og sigraði 3–1 með jafnri og góðri frammistöðu.


Mótið tókst vel í alla staði og var stemning góð meðal keppenda í Digranesinu.

Við óskum Ása Harðar til hamingju með sigurinn og þökkum öllum keppendum fyrir þátttökuna – næsta mót er rétt handan við hornið!


Bara smella á Viðburðir PFK til að sjá næstu mót.

 
 
 

Comments


AUGLÝSING

bottom of page