Ísak Máni og Karítas Kópavogsmeistarar í 501 ungmenna
- 3 days ago
- 1 min read

Þann 18. apríl hélt Pílufélag Kópavogs glæsilegt Kópavogsmót í 501 ungmenna í aðstöðu félagsins í Digranesi.
Keppt var í tveimur flokkum: 18 ára og yngri og 12 ára og yngri.
Mótið heppnaðist afar vel og var frábær stemning í húsinu frá upphafi til enda. Mikill keppnisandi einkenndi leikmenn, sem sýndu góða takta í sínum leikjum.
Spilað var í riðlum þar sem allir fengu góðan fjölda leikja áður en farið var í útsláttarkeppni.
Í eldri flokki (18 ára og yngri) stóð Ísak Máni uppi sem sigurvegari eftir afar sannfærandi frammistöðu. Í úrslitaleiknum sigraði hann Hlyn Nóa örugglega 3–0 og tryggði sér þar með Kópavogsmeistartitillinn í 501. Til hamingju með sigurinn Ísak Máni.
Í yngri flokki (12 ára og yngri) var það Karítas sem bar sigur úr býtum eftir harða keppni. Hún sigraði Þórarinn 2–1 í æsispennandi úrslitaleik þar sem úrslitin réðust í oddalegg. Karítas er Kópavogsmeistari í 501, til hamingju Karítas
Úrslitakeppnin í báðum flokkum bauð upp á marga jafna og spennandi leiki. Keppnin fór vel fram og sýndu leikmenn sínar bestu hliðar og er greinilegt að framtíð pílukasts hjá félaginu eru björt.
Pílufélag Kópavogs þakkar öllum keppendum, foreldrum og aðstandendum fyrir frábæran dag og hlakkar til að sjá sem flesta aftur á næstu mótum.
Hér fyrir neðan eru svo nokkrar myndir af keppendum.
Svo bara smella á Viðburðir PFK til að sjá næstu mót.

























































Comments